Blogg

...endilega láttu heyra í þér

21.1.2009

Mótmæli

Ég er reiður og finnst ömurlegt hvernig komið er fyrir þjóðinni, fólk að missa vinnu og sparfé uppurið, algjörlega hræðilegt.  Það sem er að gerast í Reykjavík er ekki mér að skapi, mér finnst fjölmiðlar líka partur af vandamálinu, þeir smjatta á öllu því sem tengist þessum mótmælum.  Ofbeldi er mér aldrei að skapi og því er ég mótfallinn því að valda skemmdarverkum, persónulega hefur mér fundið gegnumgangandi lögreglan hafa sýnt mikla stillingu því það eru þeir sem eru milli steins og sleggju.

Ég spyr, er ekki til einhver önnur leið að mótmæla án þess að verða froðufellandi og ofbeldishneigður?

Skrifað 21.1.2009 kl. 12:29 af Garðar Valur Hallfreðsson

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu